Teymið
Í samræmi við áherslur Lagavita á framúrskarandi gæði, fyllsta öryggi og einstaka notendaupplifun samanstendur kjarnateymi félagsins af öflugum og þaulreyndum sérfræðingum á sviðum lögfræði, hugbúnaðargerðar og öryggismála.
Til viðbótar við kjarnateymið hafa fjölmargir aðrir sérfræðingar lagt hönd á plóg við smíði, prófanir og þróun Lagavita.

Stofnandi og framkvæmdastjóri
Jóhannes Eiríksson
Jóhannes hefur sinnt margþættum lögfræði- og rekstrartengdum störfum í gegnum tíðina, s.s. sem framkvæmdastjóri Aurbjargar, yfirlögfræðingur Creditinfo Group og InfoCapital, og sem lögmaður á LEX og Mörkinni lögmannsstofu. Þar að auki stofnaði hann fyrsta eiginlega lagatæknifyrirtækið á Íslandi á árinu 2011.
Jóhannes er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með Master of Corporate Law gráðu frá University of Cambridge.

Stofnandi
Tómas Eiríksson
Tómas var yfirlögfræðingur og yfirmaður stjórnarháttaskrifstofu Emblu Medical (áður Össurar) um árabil. Fyrir það starfaði hann hjá fyrirtækjaráðgjöf og lögfræðiráðgjöf Kaupþings banka, sem lögmaður á LEX og lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis.
Tómas er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með Global Executive MBA gráðu frá IE Business School í Madrid.

Yfirprófdómari
Eiríkur Tómasson
Eiríkur er lögfræðingur að mennt með áratugareynslu af innlendum og alþjóðlegum lögfræði- og stjórnunarstörfum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Hann er fyrrum hæstaréttardómari, lagaprófessor og hæstaréttarlögmaður, auk þess sem hann hefur verið formaður ýmissa stjórnsýslunefnda og sinnt margvíslegum rekstrartengdum störfum.

Gervigreindarsérfræðingur og arkíktekt
Róbert Bjarnason
Róbert er einn af fremstu gervigreindarsérfræðingum, ekki bara hér á landi heldur í heiminum, og hefur starfað fyrir fyrirtæki á borð við Oz, Centrum Varden A/S, Bang Inc, InOrbit Entertainment Inc, Ideaworkds30 Ltd., Streamburst Ltd., DecypherMeadia Ltd., Citizens Foundation og Evoly.
Þá er Róbert jafnframt formaður stjórnar faghóps Stjórnvísi um gervigreind.

Forstöðumaður upplýsingatækni og öryggis
Svavar G. Svavarsson
Svavar hefur áratugareynslu af upplýsingatækni, öryggismálum og stjórnunarhlutverkum bæði hjá alþjóðlegum fyrirtækjum og nýsköpunarfyrirtækjum, þ. á m. Emblu Medical (áður Össur). Þá hefur Svavar áður stofnað og stýrt tæknifyrirtækjum á borð við Islandia Internet og Skyggni sem og komið að nýsköpun í hugbúnaðarfyrirtækjum, s.s. Mentor.
Svavar er tölvunarfræðingur og einnig með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM).

Hugbúnaðarsérfræðingur
Gísli Snæbjörnsson
Gísli er reynslumikill hugbúnaðarsérfræðingur og hugbúnaðararkitekt með sterkan bakgrunn í hugbúnaðarþróun, innviðum upplýsingatækni og uppbyggingu teyma. Hann hefur starfað í hugbúnaðargeiranum um árabil, m.a. hjá RÚV, CCP, MAN Diesel og í ráðgjafavinnu hjá ýmsum fyrirtækjum.
Gísli er með meistaragráðu í rafmagnsverkfræði frá DTU í Kaupmannahöfn.

Gagnasérfræðingur
Jón Orri Sigurðarson
Jón Orri er gagnasérfræðingur.

Gagnasérfræðingur
Oddgeir Páll Georgsson
Oddgeir hefur sinnt ýmsum hugbúnaðar- og gagnatengdum störfum á sínum ferli, sem hófst hjá upplýsingaöryggisfyrirtækinu Cyren áður en Oddgeir hélt til Suður-Kóreu til frekara náms. Í kjölfarið tóku við fjögur ár í hugbúnaðardeild kafbátaframleiðandans Teledyne Gavia áður en hann færði sig um set og gekk til liðs við Lagavita.
Oddgeir er hugbúnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands.